Skip to main content

BARNIÐ MITT SEGIR EKKI /R/. HVAÐ GET ÉG GERT TIL AÐ HJÁLPA ÞVÍ?

Það er eðlilegt að börn tileinki sér ekki málhljóðið /r/ fyrr en nokkuð seint í máltökunni. Mörg 3 ára börn hafa náð tökum á málhljóðinu en það telst eðlilegt að hafa ekki náð tökum á því fyrr en á milli 5-6 ára aldurs. Taka þarf mið af líðan barnsins í þessu samhengi (er því strítt?) og mikilvægt er að byrja að vinna með svo kallað „skroll“ (baklæg myndun /r/) fyrr og leita skal til talmeinafræðings eftir ráðleggingum varðandi það.

Bókin „Lubbi finnur málbein“ eftir Þóru Másdóttur og Eyrúnu Ísfold talmeinafræðinga örvar málhljóðamyndun barna. Einnig eru til bækurnar „Lærum og leikum með hljóðin“ og „R-bókin“ eftir Bryndísi Guðmundsdóttur talmeinafræðing og Hljóðabelgur eftir Þóru Másdóttur og Hrafnhildi Halldórsdóttur talmeinafræðinga (sú síðastnefnda fæst á Heyrnar- og talmeinastöð). Athugið að þegar unnið er með framburðarþjálfun er mjög mikilvægt að fá leiðsögn hjá talmeinafræðingi sem gerir ítarlega úttekt á hljóðkerfi barnsins.

Vista
Vefkökur samþykki og yfirlit
Við notum vefkökur til að betrumbæta notendaupplifun vefsins. Ef þú samþykkir ekki notkun vefkaka getur það bitnað á virkni og notkun hans.
Samþykki allar
Neita öllum
Lesa skilmála
Functional
Forrit sem eru notuð til að veita þér fleiri möguleika eins og til dæmis tengingu við samfélagsmiðla.
Osano
Vefkaka sem geymir tímabundið samþykki þitt á þessari vefsíðu
Samþykkja
Neita
Analytics
Forrit sem skráir og mælir skilvirkni vefsíðunnar. Greinir notkun gesta. Við notum þessar upplýsingar til að betrumbæta upplifun notenda.
Google Analytics
Rýnir í vefumferð á vefnum svo hægt sé betrumbæta hann.
Samþykkja
Neita