Skip to main content

Heyrnarsvið

Á heyrnarsviði Heyrnar- og talmeinastöðvar Íslands (HTÍ) starfa sérfræðingar á svið heyrnar. Heyrnarfræðingar á HTÍ sinna einstaklingum með heyrnarskerðingu, bæði fullorðnum og börnum.  Þeir sinna greiningu, ráðgjöf og endurhæfingu/hæfingu fyrir þennan hóp. Rík áhersla er lögð á að finna einstaklingsmiðaðar lausnir til að auðvelda daglegt líf fólks og bæta heyrn. Heyrnarsvið vinnur þverfaglega með öðrum sérfræðingum innan sem utan stofnunarinnar. 

Heyrnarsvið

Kynning á heyrnarfræði - Viðtal

Háskólamenntaðir heyrnarfræðingar á Íslandi – Kynning: Urður Björg Gísladóttir


Heyrnar- og talmeinastöð Íslands hefur áhuga á því að kynna heyrnarfræði og störf heyrnarfræðinga fyrir landsmönnum og í þetta skiptið höfum við kallað til okkar ungan heyrnarfræðinga, Urði Björgu Gísladóttur, sem starfar sem heyrnarfræðingur hjá HEYRN í Kópavogi.

Lesa viðtalið





Spurt og svarað á heyrnarsviði

Hávaðavarnir

Hávaðavarnir:

Lenti á sjúkrahúsi vegna of langrar tölvuleikjaspilunar í miklum hávaða

Avik Banerjee, háskólakennari frá Bristol, Englandi, lenti nýlega á sjúkrahúsi vegna afleiðinga mikillar tölvuleikjaspilunar ( að minnsta kosti fimm klukkustundir á dag) yfir langt tímabil (síðustu 15 árin).

Hinn 38 ára gamli leikjaáhugamaður, sem vann m.a. 35,000 pund í Global Call Of Duty móti, sökkti sér niður í sýndarvígvelli vinsælla leikja eins og Call of Duty og Fortnite, oft að keppa við aðra leikmenn.

Eins og aðrir spilarar notar Avik ávallt heyrnartól og sagðist hafa hljóðið á hæsta mögulega hljóðstyrk þrátt fyrir að hann vissi að það væri of hátt.

Hann hélt áfram að spila svona þar til í ágúst 2023, þegar hann byrjaði að fá svimaköst og féll einn daginn meðvitundarlaus á leið heim úr vinnu.

Hann var fluttur á sjúkrahús þar sem honum var síðar sagt að hann hefði skemmt jafnvægiskerfi sitt (vestibular kerfi) - litlu beinin í eyranu sem hafa áhrif á jafnvægi líkamans.

,,Fjarheyrn mín er alveg horfin - ef það er hátt hljóð eða tónlist í fjarska heyri ég það ekki," segir Avik.

,,Læknar hafa sagt mér að ég gæti þurft heyrnartæki ef heyrnartapið versnar - ég þarf meira að segja að fara í skoðun á sjúkrahúsi á tveggja mánaða fresti til að fylgjast með jafnvæginu. Fólk þarf að vita um varanlegan skaða sem tölvuleikir geta valdið," leggur Avik áherslu á.

Rétt eins og Avik stillir rúmur helmingur þeirra sem nota leikjaheyrnartól hljóðstyrkinn of hátt og þriðjungur spilara upplifa breytingu á heyrn eftir leikjalotu.

Rannsókn Specsavers, sem gerði könnun meðal 1.000 fullorðinna sem spila tölvuleiki, leiddi í ljós að þeir sem nota heyrnartól eyða að meðaltali 260 klukkustundum á ári í tölvuleikjaspilun.

Hringjandi eða suðandi hljóð, aukið næmi fyrir eðlilegum hljóðum og eymsli í eyrum voru meðal aukaverkana of mikillar tölvuleikjaspilunar. Og þriðjungur sagðist hafa upplifað þessar aukaverkanir oft, samkvæmt OnePoll.com gögnum.

En svo virðist sem leikmenn séu að verða meðvitaðri um hugsanlegar aukaverkanir langrar notkunar á hátt stilltum heyrnartólum, þar sem 43% segjast meðvitaðir um langtímaáhrifin sem langvarandi spilun getur haft á sjón þeirra og heyrn.

Gordon Harrison, yfirheyrnarfræðingur hjá Specsavers, sagði: "Tölvuleikir hafa fljótt orðið ein uppáhalds dægradvöl Breta. Hins vegar, eins og rannsóknir okkar sýna, er mikilvægt

að allir spili eins öruggt og mögulegt er með því að taka reglulega hlé til að tryggja að þú sért ekki að setja of mikið álag á augu og eyru."

NHS læknir, Dr Amir Khan, sagði: "Þar sem stærstu leikir ársins koma út og jólin nálgast óðfluga, munu spilarar vera límdir við skjái sína og heyrnartól meira en nokkru sinni fyrr. Reynsla Avik og rannsóknin undirstrikar að það er mjög auðvelt að láta hrífast með og vanrækja eyrna- og augnheilsu þegar maður er á kafi í tölvuleikjum.“

Hvað er til ráða?

Það eru hins vegar til nokkur einföld og auðveld ráð sem geta hjálpað leikmönnum að njóta tölvuleikja án þess að hafa skaðleg áhrif á líkamlega líðan þeirra:

1. Takmarkaðu spilatímann: Því meiri hávaði, þeim mun oftar skalt þú taka hlé, svo lækkaðu hljóðstyrkinn og settu tímamörk á milli hléa.

2. Kauptu gæðatæki: Hágæða heyrnartól eða eyrnatappar gefa venjulega betra hljóð og gera það ólíklegra að þú þurfir að auka hljóðstyrkinn. Íhugaðu hávaðadeyfandi (noise cancelling) heyrnartól til að draga úr bakgrunnshljóði og upplifa þægilegri upplifun við lægri hljóðstyrk.

3. Notaðu hljóðtakmarkandi tækni: Sum tæki eru með innbyggða tækni sem halda hljóðstigi öruggu svo þau eru frábær kostur fyrir alla sem hafa tilhneigingu til að hækka hljóðstyrkinn. Ýmis snjallforrit sem sett eru upp á hlustunartækjum geta einnig haldið hávaðastigi á heilbrigðu stigi með því að takmarka hversu hátt hljóðstyrkurinn getur farið.

4. Stilltu skjástillingar: Breyttu birtustigi skjásins og skjástillingum í eitthvað sem líður vel, þar sem það mun hjálpa til við að forðast of mikla áreynslu á augun.

5. Fylgdu 20-20-20 reglunni: Taktu þér 20 sekúndna hlé á 20 mínútna fresti og einbeittu augunum að einhverju í að minnsta kosti 20 feta fjarlægð (5-6 metra) til að draga úr áreynslu í augum.

6. Reglulegar augna- og eyrnaprófanir: Það er sjálfsagt og reyndar nauðsynlegt að láta sjón- eða heyrnarfræðing prófs sjón þína og heyrn reglulega og sérstaklega ef þú finnur fyrir einhverjum einkennum í augum eða eyrum.

(Heimild: Daily Mirror)

Kynning á heyrnarfræði

Háskólamenntaðir heyrnarfræðingar á Íslandi – Kynning: Urður Björg Gísladóttir
 
Heyrnar- og talmeinastöð Íslands hefur áhuga á því að kynna heyrnarfræði og störf heyrnarfræðinga fyrir landsmönnum og í þetta skiptið höfum við kallað til okkar ungan heyrnarfræðinga, Urði Björgu Gísladóttur, sem starfar sem heyrnarfræðingur hjá HEYRN í Kópavogi.


HTÍ: Sæl Urður, við ætlum aðeins að ræða upplifun þína af starfinu og hvað leiddi til þess að þú namst heyrnarfræði ?

Urður (UBG): Já, ég fór til Gautaborgar 2018 og hóf þar nám í heyrnarfræði við háskólann þar í borg. Það var mjög gaman, þetta voru mínar æskuslóðir, foreldrar mínir stunduðu nám í Gautaborg og því mjög gaman að koma til baka þó að stökkið úr leikskóla-sænskunni, sem enn var til staðar og yfir í háskóla-sænsku og byrja að nota sænsku á akademísku stigi, væri nokkuð mikið en hjálpaði samt.  Síðan er mjög sterkt íslensk samfélag í Gautaborg og flestir Íslendingar fljótir að ná sænskunni og aðlagast samfélaginu. 
Fyrirlestrar voru að mestu á sænsku en lesefni bæði á ensku og sænsku. 


HTÍ: Var þetta stór hópur í árgangi?


UBG: Það eru svona 30 sem byrja en ekki endilega 30 sem klára, segir Urður og hlær. Bekkurinn heldur vel saman út allt námið og systur-nám þeirra er talmeinafræði og þeir hópar fylgjast nokkuð vel að.


HTÍ: Nú er heyrnarfræði kennd í ýmsum Evrópulöndum. Skoðaðir þú aðra háskóla eða var þetta augljóst val í þínum huga?
UBG: Nokkuð augljóst, já. Það var í raunar ekki annað sem kom til greina. Móðir mín nam heyrnarfræði við þennan háskóla svo að valið var frekar einfalt. 
HTÍ: Nú er heyrnarfræðinám aðeins mismunandi eftir löndum. Við hjá HTÍ höfum mikið ráðið inn heyrnarfræðinga frá Norðurlöndum þar sem við teljum námið í t.d. Noregi og Svíþjóð mjög sterkt. Vissir þú nákvæmlega hvað þú varst að fara út í eða kom eitthvað þér á óvart þegar þú varst komin á leið með námið ?


UBG: Svosem ekki margt sem kom á óvart. Auðvitað var dálítið snúið að vera að læra nýtt tungumál samhliða náminu. Ég átti von á að námið snerist að miklu leyti um líffræði og tækni og sálfræði en mér kom kannski mest á óvart hvað tækni-þátturinn var skemmtilegur. Þetta nám er skemmtilega blanda af ólíkum greinum sem allar nýtast þó vel og tengist vel. 


HTÍ: Hvað er tæknihlutinn stór ?  Er þetta nær verkfræði eða nær sálfræði og félagsþjónustu ? Er tækni flókin?


UBG:  Þetta er hljóðtækni og maður er ekkert mikið í reikningj eða tölfræði en þetta er svo áhugavert þó að þarna sé einn reiknikúrs. En það er farið svo mikið inní í hvernig hljóð virkar. Við fórum t.d. í heimsókn inn í Chalmers, tækni- verkfræðiháskólann í Gautaborg, og skoðuðum þar sérstakt hljóðeinangrað herbergi þar sem hljóðið er í raun alveg dautt. Þú gengur inn á neti svo að allt hljóð er drepið.  Ef maður er skilinn þarna eftir í smá stund er þögnin svo alger að maður fer að heyra suð í eyrum og eiginn hjartslátt o.s.frv.  Heilinn skrúfar upp í ,,viðtækinu“ ef svo má segja og fólk þolir ekki lengi við. Það var mjög gaman að koma í vettvangsheimsókn þangað en þá sá maður líka hvað heyrnarfræðinámið er í raun langt frá hljóðverkfræði. 


HTÍ: Nú fer fólk ýmist í heyrnarfræði úr öðrum heilbrigðistengdum greinum eða beint eftir stúdentsnám. Hvaða leið fórst þú? Hafði þú e-ja aðra menntun til að byggja á?


UBG: Ég var búin að prófa eitt og annað, fór t.d. í læknisfræði í 1 og ½ ár, prófaði síðan lyfjafræði eftir að hafa skoðað verkfræði aðeins. Svo að ég var búin að viða að mér ýmsu áður en ég ákvað að prófa heyrnarfræðina.
HTÍ : Læknisfræðin og lyfjafræðin hafa nú mögulega byggt grunn í vissum greinum sem þú kynntist síðan í heyrnarfræðinni?

UBG: Já, þannig að þegar ég byrjaði í heyrnarfræðinni voru áfangar í eðlisfræði og líffræði sem ekki var farið mjög djúpt í og þar hafði ég þegar góðan grunn og hjálpaði mér mikið. 

HTÍ: Hvað þykir þér skemmtilegast við heyrnarfræðingsstarfið?


UBG: Ég held að það sé endurhæfingin, að koma fólki af stað til að heyra á nýjan leik. Það er áskorun en jafnframt skemmtileg áskorun. Hvers konar hljóð hentar þessari manneskju, að sérsníða heyrnartæki að hverri manneskju. 


HTÍ: Heyrnarskerðing er einmitt mjög einstaklingsbundið og getur verið krefjandi að útskýra það fyrir fólki, ekki satt?  Þykir þér þekking fólks nægileg?


UBG: Sumir eru vel upplýstir en mjög margir koma alltof seint og væntingarnar kannski of miklar. Fólk heldur að það geti labbað út með fullkomna heyrn. En það er ekki svo, maður þarf að þjálfa upp það sem hefur tapast á löngum tíma yfirleitt. 
Kannski er mest nauðsyn á að efla fræðslu og forvarnir gegn hávaða hér á landi. Í Svíþjóð eru mjög skýrar reglur um t.d. hávaðamörk til að vernda heyrn almenning en mér þykir ekki nóg að gert hér heima til að fræða unga og fullorðna um forvarnir gegn hávaða. En hávaði er einmitt ein helsta orsök heyrnartaps hjá bæði unglingum og fullorðnum.


HTÍ: Alveg sammála þarna. Það þarf að auka verulega þekkingu almennings, ungmenna, foreldra, kennara, viðburðahaldara o.s.frv. á mikilvægi þess að gæta að hávaðavörnum. WHO gaf nýlega út leiðbeiningar í þessa veru og Vinnueftirlitið hefur sömuleiðis unnið að þessu en yfirvöld þurfa að ganga lengra. Ungt fólk t.d. er stöðugt með hávaða í eyrum og þar gæti verið tifandi tímasprengja. Eruð þið farin að sjá ungmenni með merki um skerta heyrn vegna hávaða?

UBG: Nei ekkert mynstur, þessi kynslóð er kannski ekki komin með nógu mikla skerðingu og flestir leita sér ekki hjálpar fyrr en einkenni hafa verið viðvarandi og lengi.


HTÍ: Hvernig gekk Svíum að bera fram hið forna og al-íslenska nafn Urður ?


UBG: (hlær) Það gekk nú bara ágætlega hjá þeim, svona á sinn hátt. Mér þótti bara skemmtilegt að heyra aftur nafnið mitt einsog ég hafði vanist því að heyra það sem barn ,,Urdur“.


HTÍ:  Námið er eitt en raunveruleikinn en starfið kannski annað. Fannst þér starfið eðlilegt framhald af náminu eða kom eitthvað á óvart?


UBG:  Í raun fannst mér starfið vera ,,meira“ en ég bjóst við, ef satt skal segja. Það sem ég hafði kynnst í starfsnámi úti var miklu rólegra heldur en blasti síðan við manni hér. Það er mikill skortur á heyrnarfræðingum hér og því verður vinnan kannski aðeins meiri og meira krefjandi en ég átti von á. En hún er skemmtileg og fjölbreytt og við Íslendingar eru vön því að þurfa að vinna einsog þörf er á. Svíarnir eru kannski aðeins meira ,,ósveigjanlegir“ hvað varðar vinnutíma og vinnuálag. Ég hélt að ég þekkti sænskan kúltúr ágætlega en þetta kom kannski einna mest á óvart, hversu reglufastir þeir eru miðað við íslenska vinnustaðamenningu. Mér finnst íslenski mátinn heldur skemmtilegri (hlær).


HTÍ: Hversu langt nám var þetta?


UBG: Ég tók BSc gráðu sem er 3ja ára nám.


HTÍ: Hefur þú hug á að bæta e-ð frekar við þig námi í framtíðinni? Eru e-jir þættir innan heyrnarfræðinnar sem þig mundi langa að dýpka þekkingu þína í ?


UBG: Sko, já. Ég byrjaði núna í haust í Mastersnámi í Öldrunarfræðum og hef hug á því að helda því áfram . Síðan er hægt að taka staka sérstaka áfanga og ætla t.d. að taka kúrs um eyrnamerg í háskólanum í Lundi, spennandi námsefni (skellihlær). Ég er mjög spennt fyrir því og hlakka til að heimsækja Lund, sem ég hef ekki komið til áður.


HTÍ: En hvernig sérð þú þróun heyrnarfræðinnar ?  Persónubundin heyrnarhjálpartæki eru t.d. í umræðunni núna og komin lög og reglugerðir um slíkt í Bandaríkjunum. Heldur þú að t.d. gervigreind muni leysa heyrnarfræðinga af hólmi að e-ju leyti í framtíðinni?


UBG: Ja, það er góð spurning. En ég held að tæknin muni aldrei leysa manneskjuna af hólmi í þessum geira frekar en í almennri heilsugæslu. Við getum mælt og greint heyrnarskerðingu mun betur en sjálfs-mælingar eða einfaldar skimanir með tölvum og síðan eru heyrnarvandamál fólks oft svo margslungin og flókin og þurfa jafnvel inngrip annarra s.s. háls-nef og eyrnalækna o.s.frv. Stundum er fólk með heyrnartap út af orsökum sem hægt er að laga með öðru en heyrnartækjum o.s.frv. Við getum greint mismunandi tegundir og orsakir heyrnarskerðingar sem tæknin mun seint geta séð um sjálf. Einföld skimun sér ekki mun á loftleiðni og beinleiðni og talgreiningarpróf geta sagt okkur mikið um úrvinnslu heilsans á hljóði og gefur okkur vísbendingu um hvernig heyrnartæki geti eða muni nýtast viðkomandi einstaklingi, nokkuð sem erfitt er að sjá fyrir sér að gervigreind muni leysa. Saga sjúklinga og lýsing þeirra á skerðingu og afleiðingum skerðingar er síðan annar þáttur sem krefst þekkingar mannlegs meðferðaraðila að mínu mati.


HTÍ: Heldur þú að við munum sjá heyrnarfræðinám á Íslandi ? (Viðtalið var tekið áður en að gengið var frá samningum um fjarnám í heyrnarfræði við Örebro háskóla í samvinnu við Símenntun Háskólans á Akureyri)


UBG: Vonandi, til þess þarf auðvitað að fjölga heyrnarfræðingum og sérfræðingum sem geta kennt þessi fræði hér. Hér eru til staðar ýmsar háskóladeildir þar sem sumir kúrsar eru kenndir sem við lærðum úti svo að það ætti ekki að vera ómögulegt að færa heyrnarfræðinám inn í landið með tíð og tíma. 


HTÍ: Ef að Ísland væri með sama hlutfall heyrnarfræðinga og t.d. Svíþjóð, þá þyrftu að vera um 40-45 háskólamenntaðir heyrnarfræðingar hér á landi. Fjöldi þeirra nær varla einum tug og þar af nokkrir gisti-heyrnarfræðingar erlendir!  Hvað mundir þú segja við ungt fólk sem er að spá í hvort að heyrnarfræði gæti verið áhugavert nám ?


UBG:  Ef fólk hefur áhuga á svona samanblöndu einsog heyrnarfræðistarfið er, þá mundi ég bara segja þeim að skella sér í námið. Starfið er svo fjölbreytt, við gerum mælingar og tæknilega hluti, við ræðum mikið við fólk og veitum ráðgjöf í samræmi við þarfir þeirra, nándin er töluverð, sálfræðilegi hlutinn er mikilvægur, síðan þarf að forrita tækin og finna ýmsar lausnir til að heyrnarskertir geti tekið fullan þátt og missi ekki af neinu í hljóðumhverfi sínu.  Þetta snýst mikið um að kenna og fræða. Og sá þáttur eykst stöðugt eftir því sem tæknilausnum fjölgar. Þá þarf að finna réttu lausnina fyrir hvern og einn, unga og aldraða. Samskipti við fólk og lausnamiðað starf er a.m.k. eitthvað sem ég finn mig vel í.


HTÍ: Hver er mesta áskorunin í starfinu ?


UBG: (hugsar sig aðeins um):  Það er þá helst flóknari tilfelli svo sem einhliða skerðing eða heyrnarleysi eða eitthvað sérstakt. Sumir sjúkdómar valda sveiflukenndri heyrn og geta verið snúnir að glíma við.  Smæð stéttarinnar er líka vandamál, hvert getur maður snúið sér. Aukin samvinna innan stéttar væri til bóta.


HTÍ: Einn hópur á erfitt með að nýta þjónustu okkar en það er mjög fullorðið heyrnarskert fólk eða jafnvel með bæði sjón- og heyrnarskerðingu. Þetta fólk er oft á þjónustustofnunum fyrir aldraða, á erfitt með að sækja þjónustu utan stofnan og á erfitt með að nota örsmá heyrnartæki og engir í umhverfi þeirra sem kunna eða geta aðstoðað. Rekið þið á einkastöðvunum ykkur á þetta vandamál?

UBG: Já, það er oft áskorun ef aldraðir geta ekki sett tækin í eyrun, ekki skipt um rafhlöður, ekki hreinsað tækin o.s.frv. Sum eru svo heppin að þau eiga aðstandendur sem mæta með þeim í tíma og stillingar og læra á tækin og hvernig er hægt að aðstoða eldri ættingja sína. En því miður hittum við oft einstaklinga með takmarkaðar fínhreyfingar eða skerta sjón og þá getur verið snúið að finna lausnir sem gagnast þeim til að fá betri heyrn. Best er ef að ábyrgðin er ekki bara í höndum þess heyrnarskerta og að fólk í umhverfi þeirra geti aðstoðað og lært að umgangast hinn heyrnarskerta, hvernig er best að eiga samskipti svo að heyrnin nýtist best.


HTÍ: Við óskum stundum eftir því að ekki aðeins börn mæti heldur jafnvel barnabörn því að tæknin er stundum orðin nokkuð flókin, uppsetning appa í snjallsíma o.s.frv. Okkar reynsla er sú að barnabörnin vilja mjög gjarnan læra og kenna afa eða ömmu á tæknina.


UBG: Já, það er snjöll lausn og öll aðstoð skyldmenna, barna og barnabarna getur sparað endurkomur til að kenna á tæki og tækni.


HTÍ: Nú er heyrnarskerðing oft kölluð „Falda fötlunin“ og henni oft fylgt einhver skömm eða þöggun. Einkum er það eldra fólk sem telur heyrnartap vera öldrunarmerki og vill ekki viðurkenna fyrir sjálfum sér og öðrum að það sé heyrnarskert. Og við erum kannski ekki að hjálpa með því að hamra stöðugt á því að við bjóðum sífellt minni og ósýnilegri heyrnartæki og lausnir. Þannig erum við í raun að halda fötluninni ósýnilegri! Hvernig telur þú að við getum unnið bug á þessari skömm og gert fólki auðveldara með að viðurkenna fötlunina fyrir sjálfum sér og öðrum? 


UBG: Mér finnst þetta vera að snúast örlítið við. Líkt og snjallsímarnir voru sífellt að minnka þá eru þeir farnir að stækka aftur og nú eru að koma fram heyrnarlausnir sem eru stærri og sýnilegri, líta nánast út einsog hljómflutnings-heyrnartól en vinna eins og heyrnartæki. En við höfum vissulega verið dálítið að viðhalda þessu að ,,fela“ heyrnarskerðinguna en það þarf enginn að skammast sín fyrir að vera með heyrnartæki og það er miklu skemmtilegra og betra að geta tekið þátt í umræðum og félagslífi og fjölslkyldusamveru heldur en að heyra ekki


HTÍ: Finnst þér nóg að gert í að bæta umhverfi heyrnarskertra, reglugerðir og slíkt ef við t.d. miðum við önnur lönd eða getum við bætt eitthvað í aðgengi heyrnarskertra að umhverfi, heyrnarlausnum, greiðsluþátttöku og slíku ?


UBG: Ja, það er mikill munur á t.d. Svíþjóð og Noregi hvað heyrnarþjónustu varðar og þ.á.m. kostnaður sem heyrnarskertir þurfa að bera sjálfir. Aðgengi er ekki gott fyrir marga hér á landi og stuðningur mætti vera meiri á ýmsum sviðum. Fræðslu þarf að auka og það mundi hjálpa samfélaginu öllu ef að fólk fær stuðning til að heyra betur. Heyrnarskertir fjarlægjast fjölskyldu, hætta í vinnu og valda samfélaginu miklum kostnaði og það er alvarlegt. Við þurfum líka að hjálpa fólki til að átta sig á því að ástand þeirra er ekki eðlilegt. Ástæðan fyrir bágri félagslegri stöðu er oft vegna slæmrar heyrnar þó að viðkomandi átti sig ekki á því. Heyrnarskertir draga sig smátt og smátt í hlé og lífsgæði versna stöðugt og það getur verið dýrt fyrir samfélagið allt.


HTÍ: Þakka þér kærlega fyrir spjallið, Urður, og gangi þér vel í þínu mikilvæga starfi. Bestu þakkir.

Birt: Apríl 2024

 

 

 

Ég þarf að koma með barn í heyrnarmælingu hvernig ber ég mig að?

Þú getur pantað tíma á vefnum okkar " hér " eða sent okkur póst á netfangið This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. með upplýsingum um barnið. Ef það eru ekki lausir tímar fer barnið á biðlista og haft verður samband þegar röðin kemur að því.

Þarf að vera með beiðni til að koma með börn í heyrnarmælingu ?

Nei það það þarf ekki beiðni ef um er að ræða einungis heyrnarmælingu. Aftur á móti ef barnið þarf að heimsækja heyrnarlækni þarf tilvísun frá heimilis- eða heilsugæslulækni. 

Norræn skilgreining á daufblindu - samþættri sjón- og heyrnarskerðingu

Daufblinda kallast það þegar samþætt sjón- og heyrnarskerðing er til staðar í þeim mæli að hún gerir skertu skynfærunum erfitt fyrir að bæta upp fyrir hvort annað. Þess vegna er samþætt sjón- og heyrnarskerðing sértæk fötlun.


Helstu áhrif

  • samþætt sjón- og heyrnarskerðing takmarkar, í mismiklum mæli, virkni og kemur í veg fyrir fulla samfélagsþátttöku
  • samþætt sjón- og heyrnarskerðing hefur áhrif á félagslíf, samskipti, aðgengi að upplýsingum, áttun og öruggt umferli
  • snertiskynfærin verða mikilvægari til að bæta upp fyrir samþættu sjón- og heyrnarskerðinguna


Samþætt sjón- og heyrnarskerðing


Alvarleiki samþættrar sjón- og heyrnarskerðingar tekur mið af:

  • hvenær á lífsleiðinni skerðingin byrjar að hafa áhrif m.t.t. málþroska og samskipta
  • hversu mikil sjón- og heyrnarskerðingin er
  • hvort skerðingin sé meðfædd eða áunnin
  • hvort skynskerðingin tengist öðrum skerðingum
  • hvort skerðingin sé stöðug eða ágerist

Sértæk fötlun


Þegar skertu skynfærin eiga erfitt með að bæta upp fyrir hvort annað hefur það í för með sér að:

  • tilraunir til að nota skert skynfæri til að bæta upp fyrir annað taka langan tíma, mikla orku og skila takmörkuðum árangri
  • þegar virkni sjónar og heyrnar minnkar eykst þörfin fyrir að nota aðra skynjun (t.d. haptíska, snertiskyn, hreyfiskynjun, bragð og lykt)
    • það takmarkar aðgengi að upplýsingum úr fjarlægð
      o þörf til að reiða sig á upplýsingar frá nærumhverfi eykst
      o skilningur á upplýsingum þarf að byggjast á minni og ályktanir eru dregnar af slitróttum upplýsingum


Virkni og þátttaka


Samþætt sjón- og heyrnarskerðing takmarkar athafnir einstaklingsins og kemur í veg fyrir fulla þátttöku hans í samfélaginu. Til að gera einstaklingnum kleift að nota getu sína og úrræði þarf samfélagið að auðvelda það með sérsniðinni þjónustu:

  • einstaklingurinn og umhverfi hans eiga að taka jafnan þátt, en ábyrgðin á aðgengi að virkni er í höndum samfélagsins. Aðgengilegt samfélag ætti að lágmarki að innihalda:
    o aðgengilegan og hæfan samskiptafélaga
    o aðgengilega sérhæfða daufblindutúlkun, þar með talið taltúlkun, umhverfislýsingar og leiðsögn
    o aðgengi að upplýsingum fyrir alla
    o persónulega aðstoð til að auðvelda daglegt líf
    o aðlagað umhverfi
    o aðgengilega tækni og tæknileg hjálpartæki
  • Einstaklingur með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu getur búið við meiri fötlun við eina athöfn en minni við aðra. Mismunandi virkni getur verið afleiðing af bæði umhverfisþáttum og persónulegum þáttum.
  • Sérhæfð þekking um samþætta sjón- og heyrnarskerðingu ásamt þverfaglegri nálgun er nauðsynleg fyrir rétta þjónustu.
Aðstoð með heyrnartæki, umhirðu þeirra og notkun snjallsíma

phonaksmarttaekni.jpgEftir því sem tækninni fleygir fram hafa ný vandamál birst heyrnartækjanotendum sem tengjast notkun tækjanna samhliða snjallsímum og öðrum þannig búnaði. Stundum hefur smáforrit (app) tekið upp á því að tengjast ekki heyrnartækjunum aftur eða síminn sjálfur tengist ekki tækjunum.

Til að koma til móts við viðskiptavini okkar bjóðum við upp á tíma í tækja- og tækniaðstoð. 

Hægt er að panta tíma hjá okkur í tækjaaðstoð, ásamt því að kenna einstaklingum eða aðstandendum á notkun snjalltækja með heyrnartækjum, umhirðu heyrnartækja og fylgihluta. Athugið að ekki er hægt að fá aðstoð með heyrnarstillingu eða að breyta grunnstillingum sjálfra heyrnartækjanna. Slíkt er alfarið á höndum heyrnarfræðinga. 

Ef þú kannast við eftirtalin vandamál eða hefur velt neðangreindu fyrir þér ættir þú að panta tíma í tækjaaðstoð. 

- appið finnur ekki heyrnartækin

- nýr sími og þú nærð ekki að tengjast heyrnartækjunum

- bara annað heyrnartækið sést í appinu

- hversu oft á að skipta um síu eða túður/dome

- hvernig á að skipta um síur

- það þarf að stilla heyrnartæki og síma saman

... og fleira á þessum nótum. 

 

 

Getur hver sem er pantað tíma í heyrnarmælingu?

Já, ekki þarf sérstaka beiðni til að panta tíma í heyrnarmælingu. 

Hvað er eðlileg heyrn?

Heyrn er mæld í desibelum(dB) og tíðnum(Hz). Tíðnirnar sem eru aðalega notaðar í heyrnarmælingum eru 250 Hz til 8000 Hz. Hægt er að mæla styrk frá -10 dBHL til 110 dBHL, athuga skal að 0 dBHL þýðir ekki þögn. Heyrn er eðlileg þegar allar mældar tíðnir eru 20 dB eða lægri.

eyraHeyrn

Eðlileg heyrn byggist á því að allir hlutar eyrans og heyrnarbrautir heilans starfi eðlilega (mynd). Lögun ytra eyrans er þannig að það fangar hljóðbylgjur og beinir þeim inn í hlustina. Hljóðbylgjan skellur á hljóðhimnunni og setur hana á hreyfingu. Titringur hljóðhimnunnar hreyfir miðeyrnabeinin; hamar, sem er áfastur hljóðhimnunni, steðja og ístað. Ístaðið situr á himnu egglaga glugga sem er op á milli miðeyrans og innra eyrans. Innra eyrað samanstendur af kuðungi sem þjónar heyrninni og þrennum bogagöngum sem þjóna jafnvægisskyni og eru eins konar hallamælir líkamans. þegar ístaðið hreyfist myndast bylgja í vökvafylltum kuðungnum. Við hreyfingu vökvans sveigjast þúsundir hárfruma sem líkja má við hreyfingu þörunga á sjávarbotni þegar alda gengur yfir þá. Þegar hárfrumurnar hreyfast verða til rafboð sem flytjast til heyrnartaugarinnar. Heyrnartaugin sendir rafboðin til heilans sem túlkar boðin sem hljóð. Til þess að eyrað starfi eðlilega og veiti okkur eðlilegan aðgang að hljóðum þurfa allir hlutar þess að vera til staðar og starfa eðlilega.

Hvað er hljóð?

Hljóð er bylgjuhreyfing sem breiðist út í öreindum efnis eins og til dæmis lofts eða vatns. Tíðni hljóðs (sveiflutími) er mæld í hertzum (Hz). Styrkur hljóðsins er mældur í desibelum (dB). Tal samanstendur af hljóðum af mismunandi tíðni. Samhljóðar eru oftast á hærra tíðnisviði en sérhljóðar. Flest hljóð sem við heyrum í daglegu lífi eru samsett af mismunandi tíðni og mismiklum styrk. Heyrnarskerðing getur verið jöfn yfir allt tíðnisviðið eða komið fram á mismunandi tíðni.

Ég held að ég þurfi heyrnartæki, hvað á ég að gera?

Allir sem vilja panta heyrnartæki þurfa að fara fyrst í heyrnarmælingu hér á HTÍ. Í heyrnarmælingunni kemur í ljós hvort þörf sé á heyrnartækjum. Sé þörf á heyrnartækjum fær viðkomandi tíma hjá heyrnarfræðingi til að fara yfir hvaða heyrnartæki henta honum.

 

Save
Cookies user preferences
We use cookies to ensure you to get the best experience on our website. If you decline the use of cookies, this website may not function as expected.
Accept all
Decline all
Read more
Functional
Tools used to give you more features when navigating on the website, this can include social sharing.
Osano
Vefkaka sem geymir tímabundið samþykki þitt á þessari vefsíðu
Accept
Decline
Analytics
Tools used to analyze the data to measure the effectiveness of a website and to understand how it works.
Google Analytics
Rýnir í vefumferð á vefnum svo hægt sé betrumbæta hann.
Accept
Decline