Skip to main content

BARNIÐ MITT TALAR LÍTIÐ. HVAÐ GET ÉG GERT?

Mikilvægt er að ganga úr skugga um að heyrn barnsins sé eðlileg. Hægt er að panta tíma í heyrnarmælingu á Heyrnar-og talmeinastöð Íslands. Einnig er gott að ræða við heilsugæsluna sem sinnir og hefur eftirlit með almennum þroska barnsins. Það er eðlilegt að málskilningur sé meiri en máltjáning, það er að barnið skilji mun meira en það getur tjáð sig um. Til að fá upplýsingar um hvernig hægt er að örva tjáningu er hægt að skoða síðuna: Almenn málörvun barna (grein).

Örvið eftirhermu hjá barninu, til dæmis með því að byrja á að herma eftir einföldu látbragði eins og ,,svona stór” og ,,týndur, bö” og bætið svo við hljóðum og orðum. Nýtið daglegar rútínur til að endurtaka orð og hugtök. Endurtakið sömu orðin aftur og aftur. Endurtakið það sem barnið segir og bætið við einu til tveimur orðum. Lesið daglega og talið um það sem þið lesið þannig að barnið verði virkur þátttakandi í samræðunum þótt það sé ekki nema til að endurtaka orð eða nefna myndir. Syngið saman og leikið ykkur með því að fylla í eyður í söngvunum.

Vista
Vefkökur samþykki og yfirlit
Við notum vefkökur til að betrumbæta notendaupplifun vefsins. Ef þú samþykkir ekki notkun vefkaka getur það bitnað á virkni og notkun hans.
Samþykki allar
Neita öllum
Lesa skilmála
Functional
Forrit sem eru notuð til að veita þér fleiri möguleika eins og til dæmis tengingu við samfélagsmiðla.
Osano
Vefkaka sem geymir tímabundið samþykki þitt á þessari vefsíðu
Samþykkja
Neita
Analytics
Forrit sem skráir og mælir skilvirkni vefsíðunnar. Greinir notkun gesta. Við notum þessar upplýsingar til að betrumbæta upplifun notenda.
Google Analytics
Rýnir í vefumferð á vefnum svo hægt sé betrumbæta hann.
Samþykkja
Neita