Verð á heyrnartækjum
Verð á heyrnartækjum er mismunandi eftir framleiðendum og útfærslu tækjanna. Heyrnarskerðing einstaklings og daglegar aðstæður viðkomandi ræður því hvaða tækjum heyrnarfræðingarmæla með í hverju tilviki.
Verð á einu heyrnartæki
Verð á einu heyrnartæki (með niðurgreiðslu) er á bilinu 80 þúsund - 320 þúsund krónur.
Greiðsluþátttaka ríkisins í heyrnartækjum er mismunandi og fer m.a. aldri eftir heyrnarskerðingu.
- Börn yngir en 18 ára fá heyrnartæki gjaldfrjálst.
- 18 ára og eldri með tónmeðalgildi 30dB fá fasta upphæð í niðurgreiðslu,
50.000 krónur á hvort tæki á 4 ára fresti. - 18 ára og eldri með tónmeðalgildi 70dB fá 80% niðurgreiðslu af heildarverði.
Framleiðandi
Öll heyrnartæki sem Heyrnar-og talmeinastöð Íslands selur eru hágæða tæknivara frá helstu framleiðendum veraldar s.s. PHONAK, SIVANTOS (áður Siemens) og WIDEX.
Reglugerð
Sjá nánari upplýsingar í reglugerð HÉR
Heyrnarfræðingar okkar og afgreiðslufólk veita einnig nánari upplýsingar.