Skip to main content

Greinar

Nýburamælingar

Nýburi heyrnarmældur

Aðferðin sem notuð er við heyrnarmælinguna er einföld, áreiðanleg, tekur stuttan tíma og hægt er að framkvæma hana meðan barnið sefur. Hún er á engan hátt óþægileg fyrir barnið og foreldrar eru viðstaddir allan tímann. Litlu hlustarstykki er komið fyrir í eyra barnsins. Hljóðmerki er gefið á styrk sem samsvarar eðlilegum talstyrk. Þegar innra eyra barnsins nemur hljóðið sendir það frá sér svar og með hjálp tölvu er hægt að skrá svarið. Mælingin tekur örfáar mínútur. Ef svar mælist er það tákn um virkt innra eyra og að öllum líkindum hefur barnið þá eðlilega heyrn.

Hvers vegna að heyrnarmæla nýbura?

Eigi barn að hafa möguleika á eðlilegum málþroska er mikilvægt að heyrnarskerðingin greinist sem fyrst, helst áður en barnið hefur náð sex mánaða aldri. Rannsóknir sýna að fyrsta aldursárið er mikilvægt þroskatímabil hvað varðar máltöku barna. Það er mjög erfitt að skynja eða geta sér til um hvort lítið barn er með skerta heyrn. Þess vegna greinist heyrnarskerðing hjá börnum oft seint. Nýleg íslensk rannsókn bendir til þess að greiningaraldur hér á landi sé óvenju hár, eða um sex ára. Í flestum tilfellum eru foreldrar heyrnarskertra barna eðlilega heyrandi.
 

Því fyrr því betra!

Því fyrr sem heyrnarskerðingin greinist, þeim mun meiri möguleikar eru til þess að hjálpa barninu, þ.e. auka líkurnar á eðlilegum málþroska. Hjálpin felst oftast í ráðgjöf til fjölskyldu barnsins, heyrnartækjum og þjálfun hjá talmeinafræðingi. Hægt er að setja heyrnartæki á nokkurra vikna gamalt barn, eða um leið og staðfesting á heyrnar-skerðingunni liggur fyrir.
 
Meðfætt heyrnarleysi er afar fátítt en hér á landi fæðist u.þ.b. eitt barn heyrnarlaust á öðru hverju ári. Í flestum tilfellum kjósa foreldrar barna sem fæðast heyrnarlaus s.k. kuðungsígræðslu sem veitir ígræðsluþegum aðgang að því merka skynfæri sem heyrnin er. Bestur árangur næst ef barnið greinist snemma og fær ígræðslu fyrir 12 mánaða aldur.

Kuðungsígræðsla

Barn með kuðungsígræðsluÍgrædd heyrnartæki

Kuðungsígræðslutæki (CI) er hjálpartæki sem gefur alvarlega heyrnarskertu og heyrnarlausu fólki möguleika á að heyra hljóð. Tækið framkallar hljóðáhrif með því að örva heyrnartaugina með rafmagni. Kuðungsígræðslutækið er samsett úr innri hluta, sem er græddur í eyrað með aðgerð, og ytri búnaði, sem borinn er aftan við eyrað. Hlutinn sem græddur er í eyrað er samsettur úr viðtæki og rafskauti með mörgum rásum, en ytri hlutinn úr hljóðnema, sendi og talgervli sem er stilltur fyrir hvern og einn notanda. Talgervillinn er annað hvort vasatæki eða staðsettur bak við eyrað, svipað og hefðbundin heyrnartæki.

Hvernig vinnur kuðungsígræðslutækið?

Kuðungsígræðslutækið vinnur þannig að hljóðneminn nemur hljóð og sendir það til talgervilsins sem greinir það og kóðar. Þaðan berst hið kóðaða hljóð til sendisins og flyst gegnum húðina til viðtækisins. Viðtækið breytir kóðanum í rafboð sem send eru til hinna ýmsu rafrása í rafskaut sem grætt er í kuðunginn. Rafboðin örva taugafrumur í kuðungi innra eyrans, sem og taugaenda heyrnartaugarinnar. Boðin sem berast eftir heyrnartauginni til heilans skynjar notandinn sem hljóð.


Hér má sjá myndband um hvernig kuðungsígræðslutæki virka.

kudungsvideo