Skip to main content

Stefna og hlutverk

heyrnar og talmeinastodin-heyrnafraedingur
Aðstoð hjá heyrnarfræðingi

Heyrnar- og talmeinastöð Íslands er miðstöð þekkingar í heyrnar- og talmeinum á Íslandi. Við veitum þjónustu á landsvísu og er það hlutverk okkar að þjóna þeim sem eru heyrnarskertir, heyrnarlausir eða með talmein.

Stofnunin starfar samkvæmt lögum nr 42 frá 2007. Hlutverk stofnunarinnar er annarsvegar að veita sérhæfða þjónustu á sviði heynarmeina og hinsvegar talmeina. Leitast er við að veita sérhæfða, einstaklingsmiðaða meðferð.

Á heyrnarsviði er meðal annars veitt þjónusta, greining, meðferð og endurhæfing fyrir heyrnarskerta og heyrnarlausa óháð því hversu mikil heyrnarskerðingin er.
Talmeinasvið hefur sérhæft sig í þjónustu við heyrnarskert börn, endurhæfingu einstaklinga sem fengið hafa kuðungsígræðslu og börn með skarð í vör og góm.

Við erum leiðandi á okkar sviði og munum halda áfram að afla og miðla þekkingu um heyrnar- og talmein bæði hjá almenningi og fagaðilum. Við hvetjum til aukinna rannsókna á sviði heyrnar- og talmeina jafnframt því að vera leiðandi í rannsóknum á okkar sviði. Markmið okkar er að veita fyrsta flokks heilbrigðisþjónustu á sviði heynar- og talmeina.

Helstu samstarfsaðilar Heyrnar- og talmeinastöðvarinnar eru Landspítali, heilsugæslustöðvar, leik- og grunnskólar. Samstarfssamningur er við Háskóla Íslands vegna kennslu og rannsókna.

(uppfært nóv 2019)

 

 

 

Vista
Vefkökur samþykki og yfirlit
Við notum vefkökur til að betrumbæta notendaupplifun vefsins. Ef þú samþykkir ekki notkun vefkaka getur það bitnað á virkni og notkun hans.
Samþykki allar
Neita öllum
Lesa skilmála
Functional
Forrit sem eru notuð til að veita þér fleiri möguleika eins og til dæmis tengingu við samfélagsmiðla.
Osano
Vefkaka sem geymir tímabundið samþykki þitt á þessari vefsíðu
Samþykkja
Neita
Analytics
Forrit sem skráir og mælir skilvirkni vefsíðunnar. Greinir notkun gesta. Við notum þessar upplýsingar til að betrumbæta upplifun notenda.
Google Analytics
Rýnir í vefumferð á vefnum svo hægt sé betrumbæta hann.
Samþykkja
Neita