Skip to main content

Niðurstaða könnunar

Grein birt í fréttblaði Heyrnarhjálpar í desember 2010

Niðurstaða könnunar um notkun hjálpartækja

Á haustdögum 2010 var send könnun um notkun hjálpartækja hjá félögum Félags Heyrnarlausra. Alls var sent út til 177, eða allra á skrá sem voru með heimili skráð á Íslandi skv. Lista hjá Félagi heyrnarlausra. Svarhlutfallið var 43%, þar af 57% karlmenn og 42% konur, einn gaf ekki upp kyn. Af þeim karlmönnum sem fengu könnunina var svarshlutfallið 46% en 38% hjá konur, þetta sýnir að ívið fleiri karlmenn sýndu áhuga á að svara könnuninni.

Þegar horft er á aldurshlutfall svarenda þá eru 76% fæddir fyrir 1970 en af þeim eru flestir fæddir á árabilinu 1960-1969 eða 36% allra svarenda. Ekki var vitað um aldursdreifingu hópsins í heild og því ekki hægt að sjá hvort einn aldurshópur svarar betur en annar.

Þegar horft er á hversu margir, af þeim sem svöruðu, nota heyrnartæki daglega þá eru það 51% en 49% nota ekki heyrnartæki daglega. Ekki var athugað af hvaða ástæðu fólk velur að nota ekki heyrnartækin. Þar sem að könnunin var nafnlaus var ekki unnt að skoða heyrn svarenda. Af þeim sem gefa upp aldur heyrnartækjanna virðist meðalaldur tækjanna vera um 5 ár.

Þegar horft er að notkun hjálpartækja þá breytist þetta örlítið en svörunin var ekki alveg jafn skýr þar. Nokkuð var um að fólk svaraði “nei” en fyllti svo út hvaða hjálpartæki þau nota. Ef eingögnu er horft á hvernig fólk svaraði spurningunni um hvort þau notuðu hjálpartæki, önnur en heyrnartæki, þá er 61% sem segjast nota hjálpartæki en 37% sem ekki nota hjálpartæki. Hins vegar þegar skoðað er hve margir fylla í notkun á einhvers konar hjálpartækjum eru það 83% en 17% sem ekki nota nein hjálpartæki. (Ljóst er að einhver misskilningur hefur orðið en erfitt getur verið að koma í veg fyrir það í svona könnunum).

Þegar horft er á hvaða hjálpartæki svarendur segjast nota er vekjaraklukka efst eða notuð af 72% þeirra sem eru með einhvers konar hjálpartæki. Hjálpartæki við dyrabjöllu er notað af 64%. Sú tala sem mesta athygli vakti voru reykskynjarar en var aðeins 36% eiga reykskynjara. Barnavaki er notaður í 16% tilfella, tónmöskvi í 7% og önnur hljálpartæki voru 5%.

Þegar horft er á aldur hjálpartækjana eru yfir helmingur eða 60% svarenda sem höfðu keypt einhver hjálpartæki á sl. 5 árum. En 75% höfðu keypt hjálpartæki á sl. 10 árum. En geta má sér til að því lengra sem liðið er síðan hjálpartæki voru keypt síðast því meiri þörf er að upplýsa þá einstaklinga um hvað er til og hvaða nýjungar hafa komið síðan þeir keyptu hjálpartæki síðast

Ánægja með hjálpartækin virðist vera nokkuð mikil en 67% svarenda svöruðu í jákvæðari enda skalans frá 1-6. Þar af voru 37% sem svöruðu að þeir væru mjög ánægðir með með hjálpartækin. Því miður er ekki vitað hvers vegna þessi tæpu 33%, sem svöruðu í neðri helmingnum af skalanum, eru ekki ánægð með hjálpartækin sín. Mögulega þyrfti meiri fræðslu.

Í lok könnunarinnar gafst svarendum möguleiki á að hafa skoðun á hvernig þeir myndu vilja fá frekari upplýsingar um hjálpartæki. Þeim gafst möguleiki á að gefa fleira en eitt svar. Enginn afgerandi munur var á svörum en 14% höfðu ekki áhuga á frekari upplýsingum en svör þeirra voru ekki afgerandi í eina átt hvað varðar notkun heyrnartækja eða annarra hjálpartækja. Mestur áhuga var fyrir að fá blað sent heim eða að fá tölvupóst um hjálpartæki. Einnig var hátt hlutfall sem vildi fá frekari upplýsingar í viðtali. Fæstir, en þó lítið færri en þeir sem völdu hina kostina, vildu fá fyrirlestur varðandi hjálpartækin.

 



Kristbjörg Pálsdóttir

Heyrnarfræðingur, MSc

 


Vista
Vefkökur samþykki og yfirlit
Við notum vefkökur til að betrumbæta notendaupplifun vefsins. Ef þú samþykkir ekki notkun vefkaka getur það bitnað á virkni og notkun hans.
Samþykki allar
Neita öllum
Lesa skilmála
Functional
Forrit sem eru notuð til að veita þér fleiri möguleika eins og til dæmis tengingu við samfélagsmiðla.
Osano
Vefkaka sem geymir tímabundið samþykki þitt á þessari vefsíðu
Samþykkja
Neita
Analytics
Forrit sem skráir og mælir skilvirkni vefsíðunnar. Greinir notkun gesta. Við notum þessar upplýsingar til að betrumbæta upplifun notenda.
Google Analytics
Rýnir í vefumferð á vefnum svo hægt sé betrumbæta hann.
Samþykkja
Neita