Skip to main content

HVAÐ GERIST EFTIR ATHUGUN Á MÁLÞROSKA HJÁ TALMEINAFRÆÐINGI?

Ef í ljós kemur eftir málþroskamat að málþroski barnsins er eðlilegur miðað við jafnaldra er ekki þörf á frekari íhlutun talmeinafræðings. Ef barnið er með minniháttar frávik miðað við jafnaldra er það mat talmeinafræðings hverju sinni hvort mælt er með málörvun heima og/eða í leikskóla (foreldrar fá ráðgjöf þar að lútandi) og síðan endurmati eða hvort talin er þörf á meðferð. Ef um slíkt er að ræða eða ef frávikin eru umtalsverð stendur barninu til boða að koma í nokkra tíma í talþjálfun á HTÍ. Bið eftir þjálfun getur verið nokkrir mánuðir. Þegar barnið kemst að fær það venjulega um 5 – 6  skipti í þjálfun. Síðan fer barnið í nokkurra mánaða bið og kemur aftur í 5 – 6 skipti. Á þennan hátt bregðumst við við þeim mikla fjölda beiðna sem bíða afgreiðslu.

HTÍ er í samvinnu við námsbraut í talmeinafræði við Háskóla Íslands. Nemendur við námsbrautina eru gjarnan í starfsþjálfun á HTÍ og sinna börnum undir handleiðslu talmeinafræðinga. Barnið þitt/ykkar gæti fengið þjálfun hjá nema.

Í kjölfar greiningar og ráðgjafar á HTÍ sækja foreldrar um talþjálfun hjá sjálfstætt starfandi talmeinafræðingi eða leita annarra úrræða (til dæmis ef boðið er upp á þjónustu talmeinafræðings á þjónustumiðstöð eða skólaskrifstofu). Börn sem fá meðferð hjá talmeinafræðingi á HTÍ eru:

$1·         Börn sem eru heyrnarskert

$1·         Börn sem fæðast með skarð í gómi eða vör


Af hverju þarf að heyrnarmæla barnið mitt vegna mats hjá talmeinafræðingi?
Mikilvægt er að útiloka að heyrnarskerðing sé til staðar.

Save
Cookies user preferences
We use cookies to ensure you to get the best experience on our website. If you decline the use of cookies, this website may not function as expected.
Accept all
Decline all
Read more
Functional
Tools used to give you more features when navigating on the website, this can include social sharing.
Osano
Vefkaka sem geymir tímabundið samþykki þitt á þessari vefsíðu
Accept
Decline
Analytics
Tools used to analyze the data to measure the effectiveness of a website and to understand how it works.
Google Analytics
Rýnir í vefumferð á vefnum svo hægt sé betrumbæta hann.
Accept
Decline