Stuðningur við kennsluráðgjafa hjá HTÍ
Foreldra- og styrktarfélag heyrnardaufra barna hefur ákveðið að styðja við starf kennsluráðgjafa hjá HTÍ, með það að sjónarmiði að kennarar barna utan höfuðborgarsvæðisins geti einnig notið góðs af ráðgjöf og fræðslu.
Í lok nóvember fór Hildur Heimisdóttir, norður á Akureyri og hitti þar kennara og nemendur í tveimur skólum. Hún fékk hvarvetna hlýjar móttökur og bæði kennarar og nemendur urðu ýmsu nær um notkun búnaðar sem getur auðveldað börnum með heyrnarskerðingu lífið í skólanum.
Í lok dags sameinuðust kennarar úr báðum skólum og fengu fræðslu um leiðir til þess að bæta kennsluaðstæður og hugmyndir að leiðum til þess að gera kennsluna enn sjónrænni.
Hildur var ánægð með að komast norður í land og sjá það góða starf sem þar fer fram og hitta fyrir öflugan kennarahóp.