30 ára starfsafmæli ! Herdís Guðbjartsdóttir
Ekki verður kvartað undan því að starfsfólk Heyrnar-og talmeinastöðvar sé ekki trygglynt og staðfast. Þann 5.febrúar s.l. átti t.d. Herdís Guðbjartsdóttir 30 ára starfsafmæli hjá stöðinni.
Herdís er þúsundþjalasmiður hjá okkur, hún stundar heyrnarmælingar af gríð og erg, tekur mót og smíðar hlustarstykki, sinnir vinnustaðamælingum og alls konar smáviðgerðum og þjónustu. Fáir eru liprari eða þolinmóðari við að mæla iðandi og ódæl börn og lunkin er hún við óþolinmóð gamalmenni. Rólegheitamanneskja sem siglir þó staðfastlega áfram til hagsbóta fyrir stöðina og skjólstæðinga hennar.
Við óskum Herdísi hjartanlega til hamingju með áfangann og þökkum fyrir hennar mikla starf og framlag í öll þessi ár. Jafnframt væntum við áframhaldandi framlags næstu 30 árin !