Margrét í móttökunni hættir !
Hún Margrét Jónsdóttir (sú til hægri á myndinni), sem starfað hefur í móttöku HTÍ í nær 15 ár, hættir störfum hjá okkur í dag, 12.mars. Margrét er hvers manns hugljúfi og einstaklega hlýtt viðmót hennar hefur kætt margan skjólstæðing Heyrnar-og talmeinastöðvar til margra ára.
Við óskum Margréti velfarnaðar í nýju starfi og þökkum henni samstarfið til margra ára. Vilji skjólstæðingar HTÍ koma skilaboðum eða kveðjum til Margrétar er þeim velkomið að senda inn línu á
…..en maður kemur í manns stað
Nýr starfsmaður í móttöku er Ingveldur Jóna Gunnarsdóttir og bjóðum við hana hjartanlega velkomna í hópinn. Inga Jóna starfaði lengi innan bankakerfisins áður en hún gekk til liðs við HTÍ. Þessi eldklára kona hefur þegar sýnt að hún mun fylla skarð
Margrétar með miklum sóma.