Er virkilega til pilla við heyrnartapi?
Er virkilega til pilla við heyrnarleysi?
Snákaolía eða sannleikskorn?
Nýlega vorum við hjá Heyrnar- og talmeinastöðinni spurð hvort að við hefðum séð auglýsingu um sannkallaða töfrapillu, „Heyrnartaps-pilluna“. Með fylgdi vefslóð á auglýsingu þar sem til sölu var sannkölluð undrapilla sem, að sögn hins bandaríska söluaðila, getur stórbætt heyrnartap með því að:
- Örva taugar í innra eyra
- Örva heilann svo hann skilji betur hljóð
- Stöðva skaðlegar sameindir sem valda heyrnartapi
- Veita bætiefni sem eru nauðsynleg fyrir góða heyrnarstarfsemi
Ekki lítur þetta nú illa út og kannski skiljanlegt að sumir freistist til að kaupa sér mánaðarskammt á 8-10 þúsund krónur (með heimsendingu) og prófi slíkt undralyf.
Við ákváðum því að kanna ögn betur hvað liggur að baki. Í ljós kemur að pillan er samsett úr ýmsum virkum efnum og hjálparefnum. Helsta virka efnið heitir Vinpocetin eða ethyl apovincaminate. Þetta efni var upprunalega unnið úr plöntu en árið 1975 fann ungverskur vísindamaður leið til að framleiða efnið syntetískt eða með efnablöndum. Vinpocetin er skráð sem lyf við elliglöpum og minnistapi í sumum löndum Austur-Evrópu en hefur ekki hlotið náð fyrir augum vestrænna heilbrigðisyfirvalda. Þó er efnið leyft sem bætiefni/næringarefni í Bandaríkjunum og víðar.
Nokkrar vísindalegar rannsóknir hafa verið gerðar á virkni vinpocetins en ekki rákumst við á neinar sem sérstaklega skoða áhrif á heyrn. Lyfið getur haft áhrif á senso-neural starfsemi (s.s. heyrnartaug) en ekki er samt hægt að álykta að heyrn geti batnað þó svo sé.
Óvirkt en skaðlaust?
Heyrnarpillan inniheldur 10mg af Vinpocetin en síðan eru hin ýmsu vítamínum og bætiefnum bætt í hylkin. Trúlega verður engum meint af inntöku þessa „lyfs“ en við getum ekki séð að heyrnarskertir geti vænst neins árangurs af töku þessarar næringarblöndu á heyrnina. Því miður.
Við vonum auðvitað að í framtíðinni muni læknavísindum takast að finna leið til að lækna veiklaðar eða ónýtar hárfrumur í innra eyra (aðalorsök heyrnarskerðingar og heyrnarleysis) en sú lækning er ekki enn til staðar. Uppfinning slíks lyfs verður örugglega á forsíðum allra fjölmiðla þegar þar að kemur en ekki aðeins auglýst með vafasömum upphrópunum á lítt þekktum vefsíðum þeirra sem vilja nýta sér löngun heyrnarskertra eftir betri lífsgæðum.