Skip to main content

Talmeinafræðingur, afleysing - Heyrnar og talmeinastöð íslands

Heyrnar- og talmeinastöð Íslands óskar að ráða talmeinafræðing í afleysingu frá miðjum ágúst 2025 og til 6 mánaða (möguleiki á framlengingu).

Helstu verkefni og ábyrgð

Starfssvið talmeinafræðinga HTÍ er m.a.:

  • Málþroskamat, greining og meðferð

  • Talþjálfun barna og fullorðinna

  • Gerð þjálfunaráætlana og samstarf við leikskóla og grunnskóla

  • Þjálfun kuðungsígræðsluþega

  • Þjálfun og kennsla nema í talmeinafræðum

Hæfniskröfur

Starfsleyfi frá Landlækni til að starfa sem talmeinafræðingur.

Mikil áhersla er lögð á lipurð í mannlegum samskiptum og sjálfstæðum vinnubrögðum.Staðreynd starfsreynsla í faginu.

Íslenskukunnátta á stigi C1 samkvæmt evrópska tungumálarammanum[AS1] .Kostur ef viðkomandi er með kunnáttu í íslensku táknmáli.


[AS1]https://rm.coe.int/CoERMPublicCommonSearchServices/DisplayDCTMContent?documentId=090000168045bb5c

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Viska - stéttarfélag hafa gert.

Talmeinafræðingar Heyrnar- og talmeinastöðvar leggja áherslu á foreldramiðaða nálgun í sinni vinnu, auk fræðslu og teymisvinnu í skólum barnanna. Unnið er í þverfaglegum teymum innan stöðvarinnar en einnig í samvinnu við Barnaspítala og LSH.

Vinnutími: 8-16 mán-fim og 8-13 á föstudögum. Möguleiki á sveigjanleika.

Laun: skv stofnanasamningum ríkis og Visku.

Umsóknarfrestur er til og með 24.júní 2025. Umsóknir skulu berast bréflega eða sem viðhengi með tölvupósti til Heyrnar- og talmeinastöðvar Íslands, Hraunbæ 115, 110 Reykjavík, eða á tölvupóstfang: This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. merktar Starfsumsókn-talmeinafræðingur.

Nánari upplýsingar veitir Anna Ósk Sigurðardóttir, sviðsstjóri í síma 581-3855 eða á netfangi This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 24.06.2025

Nánari upplýsingar veitir

Anna Ósk Sigurðardóttir, This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.

Sími: 581-3855

Sækja um starfið hér: https://radningarkerfi.orri.is/?s=39294