Ég heyri og hlusta: Um heyrnarskimun í grunnskólum
Í skoðunargreinum Vísis í dag er réttilega vakin athygli á mikilvægi heyrnar fyrir þroska og velferð barna okkar. Í greinum á borð við „Týndu börnin“ og „Heyrnin tengir okkur“ hafa sérfræðingar og aðstandendur lýst áhyggjum af því að börn með heyrnarskerðingu fái ekki þá þjónustu sem þau þurfa á að halda. Heilbrigðisráðuneytið tekur undir þessi sjónarmið; heyrn er ekki aðeins eitt af okkar mikilvægustu skynfærum heldur grundvöllur málþroska, náms og félagslegrar þátttöku. Það liggja fyrir rök um að innleiða skipulagða heyrnarskimun í skólaheilsugæslu. Starfshópur embættis landlæknis sem ég fól að koma með ráðleggingar um slíka skimun og framkvæmd hennar skilar niðurstöðu innan skamms og ég vænti góðs af störfum hópsins.