Skip to main content

DAGUR HEYRNAR – Skilaboð Alþjóða heilbrigðisstofnunar og HTÍ

Höfundur: Kristján Sverrisson,  forstjóri Heyrnar og talmeinastöðvar

Þriðjudagur 3.mars er alþjóðlegur DAGUR HEYRNAR – World Hearing Day.
Þema Dags heyrnar 2026 er um mikilvægi heyrnarverndar fyrir öll börn og nauðsyn þess að heilbrigðiskerfi stundi skipulega skimun á heyrn skólabarna í forvarnarskyni.

Skilaboð WHO: 

  • Meira en 95 milljónir barna á aldrinum 5-19 ára eru með skerta heyrn.
    Hægt er að koma í veg fyrir meira en 60% heyrnartaps hjá börnum með 
    einföldu og ódýru inngripi heilbrigðiskerfa.
  • Gera þarf kerfisbundna skimun á heyrn og skjótt inngrip að föstum þætti heilbrigðiseftirlits í skólum. Þannig má tryggja bætt lífsgæði og bættan námsárangur barna með heyrnarvandamál.
  • Fyrir börn með eyrna- eða heyrnarvandamál skiptir fræðsla, snemmtæk greining, skjót meðferð og vönduð endurhæfing lykilmáli til að koma í veg fyrir langtímaáhrif á þroska, menntun og framtíðarmöguleika barnanna.

Ísland er því miður í hópi vanþróaðra þjóða þegar kemur að heyrnarvernd barna og unglinga. Skimun á heyrn skólabarna var felld niður fyrir mörgum árum gegn ráðleggingum sérfræðinga Heyrnar- og talmeinastöðvar. Í samanburði við önnur lönd virðist stór hópur barna með heyrnartap vera ógreindur og án aðstoðar.

Nauðsynlegt er að endurvekja kerfisbundna skimun á heyrn skólabarna hér á landi í samræmi við ofangreindar ábendingar Alþjóða heilbrigðisstofnunar.

Góð heyrn er börnum nauðsynleg í námi, lífi og leik. Komum í veg fyrir langtímaáhrif heyrnartaps á þroska, menntun, lífsgæði og framtíðarmöguleika íslenskra barna!

Mynd: Kristján Sverrisson, forstjóri HTÍ