Skip to main content

Heyrnar og talmeinastöð auglýsir eftir talmeinafræðingi í tímabundið hlutastarf

Um tímabundna ráðningu að ræða til 6 mánaða í senn með vinnuaðstöðu á Heyrnar og talmeinastöð. Verkefni munu felast í greiningum og talþjálfun skjólstæðinga stöðvarinnar. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf eigi síðar en 1. janúar 2026.

 

Helstu verkefni og ábyrgð

Athuganir og greiningar á börnum og unglingum.

Ráðgjöf til foreldra og starfsfólks skóla vegna barns.

Ráðgjöf til leik og Grunnskóla.

 

Menntunar- og hæfniskröfur

Löggilding til starfa sem talmeinafræðingur.

Reynsla af mati, greiningu og ráðgjöf vegna barna.

Skipulagshæfileikar, sjálfstæði í vinnubrögðum, frumkvæði og framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum.

Jákvætt hugarfar og lausnamiðað viðhorf.

Íslenskukunnátta á stigi C1 samkvæmt evrópska tungumálarammanum.

 

Vinnustaður er hjá HTÍ að Hraunbæ 115, 110 Reykjavík. 

Laun og kjör í samræmi við stofnanasamninga, 

Frekari upplýsingar veitir Anna Ósk Sigurðardóttir (sendið tölvupóst til This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. merkt "Talmeinafræðingur - hlutastarf")