Þjónusta Heyrnar- og talmeinastöðvar
Stefna HTÍ er að hjálpa heyrnarskertum og heyrnarlausum til að njóta þess skynfæris sem heyrnin er sem og að aðstoða börn og fullorðna með talmein sem flokkast undir þjónustusvið HTÍ.
Starfssvið HTÍ markast af lögum um stofnunina (frá 2005) og starfsemin fellur undir heilbrigðismál. Fjöldi starfsmanna á árinu 2024 var 23 í u.þ.b. 19,8 stöðugildum.
Starfsstöðvar eru í Reykjavík og á Akureyri ásamt móttöku á Sauðárkróki. Mannekla og langvinnur niðurskuður hefur leitt til þess að stofnunin hefur ekki geta boðið reglulega móttöku á öðrum stöðum síðustu ár.
Stofnunin er miðstöð heyrnarfræðiþjónustu í landinu og eina opinbera heyrnarþjónustustofnun landsins. HTÍ ber að sinna öllum landsmönnum. Undir heyrnarsvið falla 12,5 stöðugildi heyrnarfræðinga, lækna, heyrnartækna og aðstoðarfólks.
Á Talmeinasviði starfa nú aðeins 3 talmeinafræðingar og annast fjölbreytta þjónustu við heyrnarskerta, börn og fullorðna, skarðabörn, kuðungsígræðsluþega o.m.fl.
Mikil þörf er að auka við bæði talmeina- og heyrnarþjónustu HTÍ, bæta forvarnir, mennta fleiri fagaðila og auðvelda heyrnarskertum aðgengi um land allt. Þá þarf að bæta verulega fræðslustarf til foreldra, kennara og umönnunaraðila heyrnarskertra barna, fræðslu og þjálfun þeirra sem sinna öldruðu fólki með heyrnarskerðingu sem og almenna fræðslu til almennings og yfirvalda.