Skip to main content

Offita unglinga tengist heyrnarskerðingu

Of feitir unglingar eru líklegri til að verða fyrir heyrnartapi en aðrir jafnaldrar þeirra.

Unglingar sem glíma við offitu eru næstum tvisvar sinnum líklegri til að þróa lágmarks - hátíðni heyrnarskerðingu, samkvæmt rannsókn frá Medical Center Columbia University .

Niðurstöður rannsóknarinnar leiddu í ljós að 15,16% af offitusjúklingum á unglingsaldri, (skilgreindir með líkamsþyngdarstuðul (BMI ) yfir 95 hundraðshlutamörk), þjáðust af samskonar „sensorineural heyrnarskerðingu." Til samanburðar voru aðeins 7.89 % af unglingum í meðalþyngd (samanburðarhópurinn) með heyrnarskerðingu .

„Þetta er fyrsta rannsókn sem sýnir að offita tengist heyrnarskerðingu hjá unglingum," sagði aðalhöfundur rannsóknarinnar, Anil K. Lalwani, prófessor á skurðdeild háls- nef og eyrnadeildar Háskólasjúkrahússins í Columbia University í Bandaríkjunum.

Regluleg skimun heyrnar er nauðsynleg
Niðurstöðurnar sýna hversu fljótt skaði á innra eyra getur leitt til heyrnarmissis þegar offeitir unglingar halda áfram að vera of feitir þegar komið er á fullorðinsaldur. Lalwani mælir með reglulegri skimun heyrnar hjá offitusjúklingum á unglingsaldri.

„Fyrri rannsóknir hafa sýnt að 80% unglinga með heyrnarskerðingu voru ómeðvitaðir um eigin heyrnarskerðingu. Því ættu unglingar sem glíma við offitu að fá reglulega heyrnarskimun svo hægt sé að meðhöndla þá á viðeigandi hátt til að forðast andleg vandamál og hegðunarvandamál" leggur Lalwani til.

Um rannsóknina
Lalwani og samstarfsmenn hans greindu gögn úr National Health & Nutrition Survey sem unnin var af National Center for Statistics Health of the Centers for Disease Control and Prevention á árunum 2005 og 2006. Rannsóknin náði til 1.500 unglinga, á aldrinum 12-19 ára, sem svöruðu spurningum um persónulega- og fjölskyldusjúkrasögu, hvaða lyf þeir tækju, reykingar, félagslega þætti og sögu um útsetningu fyrir hávaða.

Heimildir : www.medicaldaily.com og www.news-medical.net

Save
Cookies user preferences
We use cookies to ensure you to get the best experience on our website. If you decline the use of cookies, this website may not function as expected.
Accept all
Decline all
Read more
Functional
Tools used to give you more features when navigating on the website, this can include social sharing.
Osano
Vefkaka sem geymir tímabundið samþykki þitt á þessari vefsíðu
Accept
Decline
Analytics
Tools used to analyze the data to measure the effectiveness of a website and to understand how it works.
Google Analytics
Rýnir í vefumferð á vefnum svo hægt sé betrumbæta hann.
Accept
Decline