Skip to main content

Höfðingleg gjöf !

Í tilefni DAGS HEYRNAR 2026 ákvað Öryrkjabandalag Íslands að gefa Heyrnar- og talmeinastöð nýjan skimunarmæli sem verði notaður til að skima heyrn skólabarna þegar og ef slík skimun verður tekin upp að nýju hér á landi. Eitt baráttumál WHO og þema dagsins í ár er að skora á heilbrigðisyfirvöld að innleiða reglulega skimun heyrnar sem fastan þátt í heilsuvernd skólabarna. Alma Ýr Ingólfsdóttir, formaður ÖBÍ, afhenti Kristján Sverrissyni þessa höfðinglegu gjöf nú í morgun.

Dagur heyrnar 3.mars 2026