Heilsugæslan tekur við verkefnum Heyrnar- og talmeinastöðvar
Heyrnar- og talmeinastöð Íslands verður lögð niður 1. maí næstkomandi og tekur Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins við verkefnum hennar og þjónustuþegum. Heyrnar- og talmeinastöð er nú þegar staðsett í húsnæði heilsugæslunnar í Árbæ og verður þar áfram.
Starfsmenn Heyrnar- og talmeinastöðvar verða starfsmenn Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins með sömu ráðningarkjörum og áður samkvæmt tilkynningu ráðuneytisins.
Frumvarp heilbrigðisráðherra þessa efnis hefur verið samþykkt á Alþingi. Starfsmenn Heyrnar- og talmeinastöðvar eru að jafnaði 25 og er þetta ein minnsta stofnun heilbrigðisráðuneytisins, sett á fót með lögum frá Alþingi árið 1978.
Samkvæmt tilkynningu stjórnarráðsins hefur starfsemi Heyrnar- og talmeinastöðvar og fjöldi stöðugilda við stofnunina ekki þróast í takt við aukna eftirspurn eftir heyrnar- og talmeinaþjónustu, heyrnarmælingum og þjónustu vegna heyrnartækja. Þá hafi starfsemi annarra söluaðila heyrnartækja og sjálfstætt starfandi heyrnarfræðinga aukið úrval og bætt aðgengi að þjónustu fyrir heyrnarskerta.