Fræðslan fór fram 23. febrúar og var samvinnuverkefni Heyrnar- og talmeinastöðvar og Hlíðaskóla.

Fyrirlesarar eru Anna Ósk Sigurðardóttir, talmeinafræðingur, Hildur Heimisdóttir kennari í Hlíðaskóla og Kristbjörg Gunnarsdóttir heyrnarfræðingur

Í fyrirlestrinum er farið yfir: 

  • Heyrn og heyrnarskerðingar

  • Meðferð heyrnartækja og aukabúnaðar

  • Áhrif heyrnarskerðingar á málþroska, samskipti og námsgetu

  • Þjónustuferli HTÍ við börn með heyrnarskerðingu

  • Barnið í skólastofunni: Hljóðvist, kennsluaðferðir og tækni

Fyrirlesturinn er táknmálstúlkaður.