Fréttir

Viðvarandi mannekla hefur verið á talmeinasviði frá 1. febrúar 2023. Vegna þessa hafa orðið eftirfarandi takmarkanir á þjónustu talmeinasviðs:

  • Hætt hefur verið málþroskaathugunum á börnum vísað frá heilsugæslum eftir 18 mánaðaskoðun.
  • Sett hefur verið upp lotukerfi í talþjálfun til þess að tryggja talþjálfun fyrir fasta skjólstæðinga.
  • Hægst hefur á innköllun heyrnarskertra barna og barna með skarð í gómi og/eða vör.

Hægt hefur verið að tryggja eftirfarandi þjónustu:

  • Endurhæfingu nýrra kuðungsígræðsluþega.
  • Málþroskaathuganir fyrir börn með nýgreinda heyrnarskerðingu.
  • Fyrstu heimsóknir barna fædd með skarð í gómi og/eða vör.

Allir sem hafa verið fastir skjólstæðingar talmeinasviðs eru skráðir og verður haft samband við þá þegar pláss losna í talþjálfun.

Frá og með áramótum hafa talmeinafræðingar unnið eftir svokölluðum lotukerfum þar sem hvert barn fær ákveðinn fjölda þjálfunartíma en að þeim loknum fer barn aftur á biðlista eftir þjálfun.

Mikilvægt er að þjálfunartímar sem bjóðast séu vel nýttir og að forföll séu tilkynnt tímanlega. Ef mikið er um forföll eða fjarvera ekki tilkynnt verður litið svo á að talþjálfun sé hætt.

Mörg börn eru á biðlista og ljóst er að ekki er hægt að tryggja sama fjölda talþjálfunartíma og áður. Talmeinasvið Heyrnar- og talmeinastöðvar Íslands ítrekar að fylgst er vel með málum en hægt er að hafa samband ef áhyggjur vakna.

Subcategories