Talmeinafræðingar vinna við greiningu og íhlutun á mál- og talmeinum, auk kyngingartregðu. Dæmi um vanda sem talmeinafræðingar sinna eru t.d. málþroskaröskun, framburðar- og hljóðkerfisraskanir, stam, raddveilur, tjáningarerfiðleika eftir heilablóðfall og kyngingartregðu. Einnig meta þeir þörf fyrir og veita þjálfun í óhefðbundnum tjáskiptaleiðum. Ráðgjöf er mikilvægur þáttur í starfi talmeinafræðinga.

Talmeinafræðingar starfa í leikskólum, skólum, á sjúkrahúsum, endurhæfingarstöðvum, greiningarteymum og á eigin stofum. Talmeinafræðingar vinna í nánu samstarfi við kennara, lækna, sálfræðinga og aðrar uppeldis-og heilbrigðisstéttir. Skjólstæðingar eru á öllum aldri, allt frá ungabörnum til aldraðra. Nánari upplýsingar um starfið má finna á heimasíðu Félags talmeinafræðinga á Íslandi www.talmein.is

                                                                                               texti tekinn af www.talmein.is