Viðgerðir

Ef tæki eru talin biluð eftir að búið er að ganga úr skugga um að tækin séu hrein og mergsíur nýjar er hægt að koma með tækin og skilja eftir í poka í afgreiðslu. Pokar eru á staðnum.

Viðgerðartími er oftast 1-2 dagar ef ekki vantar varahluti eða annað óvænt kemur upp á.

Athugið að ef þörf er á stillingu þarf að panta tíma hjá heyrnarfræðingi.

 


Mikilvægt að athuga áður en komið er með tæki í viðgerð. 

  1. ATHUGA RAFHLÖÐUR - Þrífa rafhlöðuskúffu og rafhlöðusnertur gott er að nota spritt og eyrnapinna. Athuga hvort rafhlöður hafi hleðslu. "Mælum með litlum rafhlöðumæli til að vera viss". 

  2. HREINSA TÆKIN VEL - Hreinsa allan merg af tæki og tappa. Hreinsisett kemur með öllum heyrnartækjum.  Þrifa tappa vel með bursta og vatni. þurrka og blása í gegnum tappa. Hægt er að fá blásturspúða og hreinsisett hjá okkur.

  3. EF RAKI ER Í TÆKI GEYMA YFIR NÓTT - Gott er að geyma tækin á heitum rakalausum stað yfir nótt eða í þurrkboxi. Þurrkbox fást hér hjá okkur. Bæði rafmagns og rakatöflur.

 

 

Leiðbeiningar fyrir Siemens heyrnartæki

Leiðbeiningar fyrir Phonak heyrnartæki

Leiðbeiningar fyrir Widex heyrnartæki